Það eru ótal ástæður fyrir að elska Kaupmannahöfn

Það er heilmargt að sjá og gera í Kaupmannahöfn.
Það er heilmargt að sjá og gera í Kaupmannahöfn. Samsett mynd

Það er alltaf yndislegt að heimsækja Kaupmannahöfn. Borgina þarf vart að kynna fyrir landsmönnum. Höfuðborg Danmörku hefur verið vinsæll áfangastaður meðal Íslendinga í áraraðir enda alltaf nóg að sjá og gera í Kaupmannahöfn.

Borgin iðar af lífi, litum, yndislegu fólki og menningu. Þar er hægt að njóta einstaks arkitektúrs, matarmenningar, náttúrufegurðar og lista.

Tímaritið Harpers Bazaar tók saman lista yfir það besta sem borgin hefur upp á að bjóða. 

Göngutúr um Nýhöfn

Litadýrðin við Nýhöfn er engu lík.
Litadýrðin við Nýhöfn er engu lík. Ljósmynd/Kristijan Arsov

Hjólreiðatúr um borgina líkt og sannur Dani

Reiðhjól eru mjög vinsæll ferðamáti í Danmörku.
Reiðhjól eru mjög vinsæll ferðamáti í Danmörku. Ljósmynd/Anders Mortensen

Lautarferð í Frederiksberg

Það er mikið af fallegum görðum í Frederiksberg og því …
Það er mikið af fallegum görðum í Frederiksberg og því upplagt að eyða sólríkum degi með vinum og njóta góðs matar. Ljósmynd/Calvin Shelwell

Splæstu í danska pylsu

Öll elskum við SS en danska pylsan er líka ljúffeng.
Öll elskum við SS en danska pylsan er líka ljúffeng. Ljósmynd/Christian Werther

Heimsókn á danska hönnunarsafnið 

Það er ótrúlega margt að sjá og upplifa á danska …
Það er ótrúlega margt að sjá og upplifa á danska hönnunarsafninu. Ljósmynd/Lukas Bukoven

Labbitúr um Jægersborggade

Ein af vinsælustu götum borgarinnar er Jægersborggade.
Ein af vinsælustu götum borgarinnar er Jægersborggade. Skjáskot/Facebook

Farðu í pottana í CopenHot

Er eitthvað betra en að sitja í heitum potti eða …
Er eitthvað betra en að sitja í heitum potti eða sánu með þetta útsýni og einn kaldan? Skjáskot/Instagram

Hágæðamat­ur með hafnar­út­sýni

Einn hressasti matarmarkaður Kaupmannahafar er Reffen. Á Ref­fen er alltaf …
Einn hressasti matarmarkaður Kaupmannahafar er Reffen. Á Ref­fen er alltaf ótrú­lega mögnuð stemn­ing, oft lif­andi tónlist og æv­in­týra­legt matarúr­val! Ljósmynd/Febiyan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert