George felldi tár eftir ræðu Amal

George og Amal Clooney fögnuðu eins árs afmæli tvíburanna sinna …
George og Amal Clooney fögnuðu eins árs afmæli tvíburanna sinna nýlega. Daginn eftir flutti Amal svo hjartnæma ræðu til George að kappinn felldi tár. AFP

 

Hjónin Amal og George Clooney héldu í síðasta mánuði upp á eins árs afmæli tvíbura sinna, Ella og Alexander, í faðmi fjölskyldunnar. Daginn eftir komu þau svo fram á verðlaunahátíð í Los Angeles en heiðra átti George fyrir framlag sitt til kvikmyndagerðar og voru verðlaunin veitt af Amerísku kvikmyndastofnuninni. 

Það sem bar þó helst á góma var einstaklega hjartnæm ræða sem Amal flutti til eiginmanns síns. Svo hjartnæm að hún kom George til að fella nokkur tár. „Ég kynntist George þegar ég var 35 ára. Ég var eiginlega búin að gefast upp og sætta mig við hugmyndina um að verða piparmey. En svo kynntumst við og héldum sambandinu leyndu, þar sem við földum okkur í íbúðinni minni í London. Það leið ekki á löngu þar til ég áttaði mig á því að, hvað svo sem verður, hann væri sá eini fyrir mig.“

Amal bætti svo við: „Ég gat ekki sofið án hans og mér er sagt að ég ætti það til að glotta og halla undir flatt þegar ég las smáskilaboð frá honum. Fimm árum síðar hefur ekkert breyst. Hann er sá sem ég dáist hvað mest að og bros hans bræðir mig í hvert einasta skipti. 

Með George, segist Amal hafa fundið þessa stórkostlegu ást sem hún vonaðist alltaf eftir. Og hennar bestu stundir eru þær sem hún á með manninum sem hún elskar og börnum þeirra. „Þú fyllir heimili okkar af gleði og hamingju og það er áður en börnin okkar vita að pabbi þeirra sé Batman, talandi refur og góðkunnugur Mary Poppins. Ég er svo stolt af þér.“



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert