Fimm ára og neitar að sofa í eigin rúmi

Gott er að fara yfir með barninu áður en til …
Gott er að fara yfir með barninu áður en til breytinganna kemur hvað er fram undan og mikilvægt er að barnið finni að foreldrarnir hafi fulla trú á því að þetta sé verkefni sem barnið ræður við. Ljósmynd/Thinkstockphotos

Ung hjón í Kópavogi eiga fimm ára son sem hefur yfirtekið hjónarúmið. Þau hafa lesið sér til, gúgglað og reynt ýmis ráð til fá hann til að sofa í eigin rúmi en hann kemur alltaf upp í á nóttunni. „Annaðhvort tökum við ekki eftir því eða erum of þreytt til að standa í stappi við hann um miðja nótt.“ Hvað er til ráða?

Sælir, kæru foreldrar. Þetta eru aðstæður sem ansi margir foreldrar geta tengt við. Áður en farið er í einhverjar aðgerðir er mikilvægt, eins og alltaf ef við ætlum að breyta hegðun barna, að byrja á því að kortleggja stöðuna vel. Fyrir það fyrsta þarf þetta ekki að vera vandamál. Margir foreldrar hafa ekkert á móti því að barnið sofi upp í og á meðan það hefur ekki neikvæð áhrif á svefn barns og foreldra og er ekki að hamla barninu í því að gista til dæmis hjá ömmu og afa er kannski engin ástæða til að bregðast við.

Þreytandi að fá tær í nasir og olnboga í auga

Barnið mun að öllum líkindum vaxa upp úr því að vilja sofa uppi í hjá foreldrum. Stundum eru það nefnilega foreldrarnir sem eiga erfitt með að sleppa þessu taki af ungunum sínum. Ef þið eruð hins vegar orðin uppgefin á því að fá litlar tær í nasirnar og olnboga í augað, eða að vakna úti á brún í ykkar eigin rúmi og geta ykkur hvergi hrært, horfir málið öðruvísi við.

Svefn er fjölskyldunni nefnilega afar mikilvægur, sérstaklega yngstu meðlimunum, því að þreyta getur haft mikil áhrif á skap og líðan.

Gott er að fara yfir með barninu áður en til breytinganna kemur hvað er fram undan og mikilvægt er að barnið finni að foreldrarnir hafi fulla trú á því að þetta sé verkefni sem barnið ræður við.

Oft er gott að tengja svona nýjar venjur við einhverjar nýjar aðstæður, til dæmis ef barnið fær nýtt rúm eða nýtt sængurverasett (með uppáhalds ofurhetjunni sinni) eða aðrar breytingar eru gerðar á herberginu. Eins og alltaf er rútína af hinu góða og er gott að nýta tækifærið þegar svona breytingar eru gerðar og skapa góðar venjur í kringum svefnrútínuna ef hún er ekki eins og við viljum hafa hana.

Breyttar aðstæður fyrir barn eru þroskaferli

Til dæmis að lesa bók með foreldri í stutta stund, fá svo knús og söng eða hvað sem ykkur hugnast vel og er raunhæft fyrir ykkur. Og eins og alltaf þegar við viljum sjá breytta hegðun hjá börnunum okkar er mikilvægt að við séum samkvæm sjálfum okkur. Það getur verið freistandi að leyfa barninu að sofa uppi í bara eina nótt en þá þurfum við líka að vera meðvituð um að við getum verið að fara nokkur skref til baka í því ferli sem hafið er. Það getur tekið á að halda út svona breytingaferli og þá getur verið gott að hafa það á bak við eyrað að með því að aðstoða börnin okkar við að takast á við svona breytingar erum við að skapa þeim tækifæri til að æfa sig í því að takast á við breyttar aðstæður, sem er færni sem mun sannarlega nýtast þeim vel á lífsleiðinni.

Gangi ykkur vel!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert