Eva Longoria eignaðist soninn Santiago Baston í sumar en þetta er fyrsta barn hinnar 43 ára gömlu leikkonu. Longoria hefur verið á ferð og flugi síðustu vikur enda upptekin kona og er hún þá með son sinn með sér í barnavagni. Vagninn sem Longoria er með son sinn í er frá merkinu NUNA.
Longoria tjáði sig um móðurhlutverkið í viðtali við Extra þegar sonur hennar var sjö vikna. „Þetta er mikil vinna, en áreynslulaus vegna þess þú vilt alltaf vera með honum,“ sagði Longoria sem sagðist sakna hans á milli þess sem hún gefur honum brjóst á þriggja tíma fresti og hann sefur.
View this post on InstagramA post shared by WCB👩🏼💻 (@world_celebs_beauty) on Aug 11, 2018 at 9:05am PDT
View this post on InstagramA post shared by Eva Longoria Baston (@evalongoria) on Aug 19, 2018 at 9:46am PDT