Skiptitöskur á yfir 200 þúsund

Þessi skiptitaska frá Gucci kostar 1.750 dollara eða um 218 …
Þessi skiptitaska frá Gucci kostar 1.750 dollara eða um 218 þúsund íslenskar krónur. Ljósmynd/Gucci

Sumir láta ekki sjá sig með neitt annað en töskur frá hátískumerkjum á borð við Gucci. Þó svo að lítið bleyjubarn hafi bæst við fjölskylduna þýðir það ekki að ekki sé hægt að ganga með tösku frá dýru merki. Það er auðveldlega hægt að eyða hundruðum þúsunda í eina skiptitösku ef vilji er fyrir hendi.  

Á vefversluninni Childsplayclothing er hægt að kaupa allt fyrir barnið frá lúxusmerkjum, þar á meðal skiptitöskur. Má meðal annars finna skiptitöskur frá Gucci, Burberry, Fendi og Vercase. 

Gucci býður upp á dýrustu skiptitöskurnar en þær kosta allt að 218 þúsund íslenskar krónur. Dýrasta skiptitaskan frá Versace kostar hins vegar ekki nema um 132 þúsund krónur. 

Þessi skiptitaska frá Fendi kostar 1.724 dollara eða um 215 …
Þessi skiptitaska frá Fendi kostar 1.724 dollara eða um 215 þúsund íslenskar krónur. Ljósmynd/Fendi
Þessi skiptitaska frá Burberry kostar 1.470 dollara eða um 183 …
Þessi skiptitaska frá Burberry kostar 1.470 dollara eða um 183 þúsund ísenskar krónur. Ljósmynd/Burberry
Þessi skiptitaska frá ítalska merkinu Versace kostar ekki nema 1.065 …
Þessi skiptitaska frá ítalska merkinu Versace kostar ekki nema 1.065 dollara eða um 132 þúsund íslenskar krónur. Ljósmynd/Versace
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert