Opnar sig um fæðingu sonarins

Khloé Kardashian.
Khloé Kardashian. Skjáskot/Instagram

Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian segist ekki hafa valið að eignast barn með aðstoð staðgöngumóður ef systir hennar Kim Kardashian hefði ekki gert það í tvígang á undan henni. Hún segist hafa lært mikið um ferlið þegar systir hennar eignaðist yngri börnin sín tvö. 

Khloé og körfuboltamaðurinn Tristan Thompson eignuðust son með aðstoð staðgöngumóður fyrr á þessu ári, en hann er annað barn þeirra saman. Áður gekk hún með dóttur þeirra, True. 

„Mér hefði ekki fundist þetta jafn þægilegt ef Kimberly hefði ekki gert þetta. Ég væri ekki meðvituð um þetta, og hefði ekki vitað eins mikið,“ sagði Kardashian í viðtali við Kelly Clarkson og þakkaði systur sinni fyrir að tala opinskátt um ferlið. 

Hún segir að ferlið hafi þó verið auðveldara fyrir systur sína en hana, hún hafi sjálf viljað stjórna meiru. „Ég þekki þig ekki, ég verð bara að treysta þér. Ég elska staðgöngumóðurina mína, hún var æði. En ég var samt óþolandi, vildi að hún væri alltaf hjá mér, spurði hvað hún væri að gera og borða,“ sagði Kardashian. 

Systurnar Khloé og Kim Kardashian.
Systurnar Khloé og Kim Kardashian. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert