Sylvía Erla syngur lag úr Frozen

Að undanförnu hafa Bestu lög barnanna slegið rækilega í gegn hjá Sjónvarpi Símans, en í þáttunum syngja þau Sylvía Erla Melsted og Árni Beinteinn með söngelskum börnum. 

Á þriðjudaginn bættust þrír nýir þættir við, en í einum þeirra flutti Sylvía Erla undurfagra ábreiðu af laginu Þetta er nóg úr hinni geysivinsælu Disney-mynd Frozen. 

Þáttaröðin hefur þegar verið spiluð yfir 100 þúsund sinnum síðan hún kom til Símans og því hefur verið ákveðið að ráðast í nýja þáttaröð sem verður frumsýnd árið 2024.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert