Allt varð vitlaust í Kringlunni

Bjarni er hér á miðri myndinni en gríðarlegur mannfjöldi safnaðist …
Bjarni er hér á miðri myndinni en gríðarlegur mannfjöldi safnaðist saman í Kringlunni. Samsett mynd

Allt varð vitlaust í Kringlunni á fimmtudaginn þegar rithöfundurinn Bjarni Fritzson fagnaði útgáfu nýjustu Orra Óstöðvandi bókarinnar, Jólin eru að koma. Bókaflokkurinn um Orra hefur verið einn vinsælasti bókaflokkur landsins um árabil og unnið bókaverðlaun barnanna í fjögur ár. 

Kringlan var við það að springa þegar Bjarni heilsaði börnum og forráðamönnum þeirra. Viðtökurnar komu honum á óvart. 

„Ég í sannleika sagt, trúði vart mínum eigin augum þegar ég sá allt mannhafið og fann bara fyrir svakalegu þakklæti og gleði. Gaman að fá það beint í æð hversu spennt krakkarnir eru fyrir bókunum,“ segir Bjarni um viðtökurnar í samtali við mbl.is. 

Boðið var upp á Orra óstöðvandi kökur þar sem krakkarnir smökkuðu á uppáhaldskápunni sinni, svo var hægt að slá metið hennar Möggu Messi að halda á lofti, ásamt jólahappdrætti auk þess sem höfundurinn ljóstraði upp öllum helstu leyndardómum um þau Orra og Möggu.

Boðið var upp á kökur með myndum af Orra óstöðvandi.
Boðið var upp á kökur með myndum af Orra óstöðvandi. Ljósmynd/Aðsend
Bjarni áritaði bækur og talaði við unga aðdáendur.
Bjarni áritaði bækur og talaði við unga aðdáendur. Ljósmynd/Aðsend
Ótrúlega mörg börn mættu í Kringluna.
Ótrúlega mörg börn mættu í Kringluna. Ljósmynd/Aðsend
Foreldrar mættu með börnin sín.
Foreldrar mættu með börnin sín. Ljósmynd/Aðsend
Bjarni var þakklátur fyrir hversu margir mættu.
Bjarni var þakklátur fyrir hversu margir mættu. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert