Eva Mendes í gestahlutverki í Blæju

Eva Mendes mun radda karakter í komandi þáttaröð af Blæju.
Eva Mendes mun radda karakter í komandi þáttaröð af Blæju. Samsett mynd

Hollywood-leikkonan Eva Mendes mun fara með gestahlutverk í hinum vinsælu og margverðlaunuðu barnaþáttum Blæju (e. Bluey) í komandi þáttaröð. Leikkonan mun radda karakter jógakennara í þætti sem ber heitið „Born Yesterday“. Þriðja þáttaröðin af Blæju fer í loftið í lok nóvember. 

Mendes er víst mikill aðdáandi Blæju og hefur lýst aðdáun sinni á barnaefninu í viðtölum, en hún segir þetta uppáhaldsþátt sinn til þess að horfa á með eiginmanni sínum, leikaranum Ryan Gosling, og dætrum þeirra, Esmeröldu og Amödu. 

„Við elskum Blæju! Þátturinn skiptir miklu máli á okkar heimili,“ sagði Mendes í viðtali við ástralska fréttamiðilinn Now To Love, en Blæja er einmitt áströlsk teiknimyndaþáttaröð sem hóf göngu sína árið 2018. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert