Einfalt föndurhorn í barnaherbergið

Það þarf ekki að vera flókið að koma fyrir föndurhorni …
Það þarf ekki að vera flókið að koma fyrir föndurhorni í herbergi barnsins! Samsett mynd

Barnaherbergið er griðarstaður barnsins og því þarf að huga að því að útbúa rými þar sem þau geta notið þess að leika sér, skapa, læra, hvíla sig og hlaða batteríin. Það er tilvalið að koma fyrir föndurhorni í herbergi barnsins og það þarf alls ekki að vera flókið. 

Föndurhornið ætti að vera notalegur staður þar sem barnið getur látið hugmyndaflugið ráða för og kannað sköpunargleði sína, en föndur er afar þroskandi fyrir börn bæði andlega og líkamlega. 

Fjölskylduvefur mbl.is tók saman nokkrar fallegar og hagnýtar vörur sem gætu nýst við gerð föndurhorns, allt frá fallegum stólum fyrir barnið að sitja í yfir í sniðugar föndurvörur. 

Eitthvað fyrir alla

Fyrsta skrefið er að finna góðan stól og borð sem hentar barninu og rýminu. Úrval af fallegum barnahúsgögnum hefur sjaldan verið betra en í dag og því ættu flestir að geta fundið eitthvað fyrir sinn smekk. 

Mouse-stólar og borð frá Nofred fást hjá Epal og koma …
Mouse-stólar og borð frá Nofred fást hjá Epal og koma í nokkrum mismunandi stærðum og litum. Ljósmynd/Nofred.com
Little Atchitect Chair frá Ferm Living fæst hjá Petit og …
Little Atchitect Chair frá Ferm Living fæst hjá Petit og kostar 18.690 kr. Ljósmynd/Petit.is
Borð frá Sebra fæst hjá Epal og kostar 17.900 kr.
Borð frá Sebra fæst hjá Epal og kostar 17.900 kr. Ljósmynd/Epal.is

Vörur sem eru fallegar og hagnýtar

Þegar búið er að leggja grunninn að föndurhorninu með borði og stól er hægt er hægt að leika sér með ýmisskonar skrautmuni til að gera föndurhornið heillandi fyrir barnið. Það er alltaf góð hugmynd að finna vörur sem eru í senn fallegar og hagnýtar, en hér má til dæmis sjá hillu sem nýtist vel undir föndurdót eða aðra smámuni, skemmtilegan veggvasa sem hægt er að nota undir liti eða pensla og flotta minnistöflu sem hægt er að skreyta með myndum. 

Hér er einnig hægt að vinna með skemmtilegar og litríkar körfur og kassa undir föndurdót sem hægt er að stafla undir eða við hliðina á borðinu eða setja upp í hillu í föndurhorninu. 

Hilla frá Hay fæst hjá Epal og kostar 15.900 kr.
Hilla frá Hay fæst hjá Epal og kostar 15.900 kr. Ljósmynd/Epal.is
Skemmtilegur veggvasi frá Quail Ceramics fæst hjá Purkhús og kostar …
Skemmtilegur veggvasi frá Quail Ceramics fæst hjá Purkhús og kostar 7.990 kr. Ljósmynd/Purkhus.is
Pennastandur frá Nofred fæst hjá Epal og kostar 5.900 kr.
Pennastandur frá Nofred fæst hjá Epal og kostar 5.900 kr. Ljósmynd/Epal.is
Minnistafla frá Nofred fæst hjá Epal og kostar 23.900 kr.
Minnistafla frá Nofred fæst hjá Epal og kostar 23.900 kr. Ljósmynd/Epal.is

Leyfðu sköpunargleðinni að blómstra

Síðasta skrefið er að finna föndurvörur sem vekja áhuga barnsins. Möguleikarnir eru endalausir hér og mikið úrval til að allskyns spennandi föndurvörum. Það er klassískt að byrja á einföldum vörum á borð við vaxliti, málningu, pensla, leir og perlur. Síðan er hægt að bæta hægt og rólega í föndursafnið. 

Vaxlitir frá Konges Sløjd fást hjá Petit og kosta 2.690 …
Vaxlitir frá Konges Sløjd fást hjá Petit og kosta 2.690 kr. Ljósmynd/Petit.is
Akrýlmálning í allskyns litum fæst hjá Söstrene Grene.
Akrýlmálning í allskyns litum fæst hjá Söstrene Grene. Ljósmynd/Sostrenegrene.is
Sjálfharnandi leir fæst hjá Söstrene Grene og kostar 1.140 kr.
Sjálfharnandi leir fæst hjá Söstrene Grene og kostar 1.140 kr. Ljósmynd/Sostrenegrene.is
Sólblóma leirform fæst hjá Eko húsinu og kostar 1.390 kr.
Sólblóma leirform fæst hjá Eko húsinu og kostar 1.390 kr. Ljósmynd/Ekohusid.is
Stafrófsstimplar fást hjá Söstrene Grene og kosta 1.150 kr.
Stafrófsstimplar fást hjá Söstrene Grene og kosta 1.150 kr. Ljósmynd/Sostrenegrene.is
Perlur og perluspjöld fást hjá Söstrene Grene.
Perlur og perluspjöld fást hjá Söstrene Grene. Ljósmynd/Sostrenegrene.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert