Innanhússafþreying fyrir fjölskyldur á rigningardegi

Pexels/Gustavo Fring

Höfum við ekki öll hlakkað til að eyða tíma með fjölskyldunni yfir helgina? Mögulega var búið að skipuleggja skemmtilega útiveru en þegar þú vaknar á laugardagsmorgni rignir eldi og brennisteini. Það er þó óþarfi að örvænta því það er nóg í boði að gera innandyra. 

Hér eru nokkrar hugmyndir að innanhússafþreyingu fyrir fjölskylduna þegar ekki er stemning fyrir því að fara út í rigninguna.

  • Sögustund: Gamla, góða sögustundin klikkar aldrei. Ef börnin eru orðin nógu gömul geta þau skipst á að lesa.

  • Fara í gegnum gömul leikföng: Leikherbergið verður mun skipulagðara fyrir vikið. Auk þess gætuð þið fundið leikföng sem hægt er að setja í geymslu eða gefa.

  • Ferð á bókasafnið: Þegar þú vilt koma öllum út úr húsi án þess að þurfa að punga út háum fjárhæðum, er tilvalið að kíkja á bókasafnið. Þar er hægt að gleyma sér innan um hinar ýmsu ævintýrapersónur, auk þess sem það eykur lestrargetu barnanna. Fyrir þau yngstu er þetta gott tækifæri til að kynnast nýjum persónum í gegnum myndskreyttar bækur. Á flestum bókasöfnum eru sérstakar barnadeildir og á mörgum þeirra er jafnvel boðið upp á leiksvæði.

  • Baka smákökur: Skellið svuntunni á ykkur og leyfðu börnunum að hjálpa til við baksturinn. Þau geta meðal annars hjálpað til við að blanda hráefnum saman, fletja út deigið og skreytt kökurnar. Hafið bara í huga hvað hentar aldri barnsins.

  • Spila borðspil: Ótalmörg borðspil eru til fyrir börn á öllum aldri. Finnið ykkur spil sem öll fjölskyldan getur spilað saman.

  • Útbúðu fjársjóðsleit: Ef börnin eru of ung til að klóra sig í gegnum vísbendingarnar í fjársjóðsleit er um að gera að gefa þeim einfaldlega lista yfir hluti á heimilinu sem þau verða að finna og safna.

  • Safnaferð: Söfn sem bjóða upp á gagnvirka miðlun og starfsemi sem grípur áhuga barnanna eru frábær leið til að eyða tímanum á rigningardegi. Einnig getur verið gaman að fara á listasöfn, þá sérstaklega fyrir þau sem eru eldri.

  • Farið í bíó, heima: Eins gaman og það getur verið að fara í bíó, þá getur það kostað sitt. Auðvelt er þó að mynda bíóstemmningu heima fyrir. Slökkvið ljósin, dragið fyrir og komið ykkur þægilega fyrir í sófanum með nóg af poppi og drykkjum.

  • Danspartý í stofunni: Þetta er frábær leið til að fá börnin, sem og fullorðna, til að hreyfa sig innandyra. Fjölskyldumeðlimir geta til dæmis skipst á að spila uppáhaldslögin sín. Einnig er hægt að nýta sér dansleiki í leikjatölvum eða fara bara á Youtube og finna danskennslu þar.

  • Lautarferð innandyra: Þið þurfið ekki að vera úti til að fara í lautarferð. Pakkaðu nesti niður í körfu, skelltu teppi á gólfið inn í stofu og njótið matarins.

  • Leysa gátur: Gátur er frábær dægrastytting og einnig frábær leið til að þjálfa börnin í smá heilaleikfimi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert