Ráð við gerð mataráætlunar fyrir fjölskylduna

Pexels/Tima Miroshnichenko

Þegar þú ert með stóra fjölskyldu er það ekki bara góð hugmynd að gera áætlun fyrir matarinnkaupin, það er í raun nauðsyn. Án þess að vera með áætlun að kvöldmat á hverju kvöldi getur auðveldlega skapast ringulreið þegar komið er að kvöldmat og enginn veit hvað á að hafa í matinn.

Þegar gerð er vikuáætlun fyrir máltíðir er mikilvægt að skipuleggja hana með þeim hætti að hún spari þér ekki bara andlega orku heldur spari þér einnig peninga. Ávinningurinn af því að gera mataráætlun er að slíkt hjálpar til við að hafa stjórn á útgjöldum, ásamt því að geta í raun aukið úrval máltíða og snarls sem boðið er upp á.

Hér eru nokkur ráð til að hjálpa þér að útbúa mataráætlun fyrir stóra fjölskyldu.

Taktu frá tíma til að gera mataráætlun

Tíminn sem notaður er í að skipuleggja máltíðir er tími sem sparast í matvöruverslunum. Rétt eins og þú gætir haft ákveðna rútínu þegar kemur að innkaupunum, þá er mikilvægt að koma upp rútína hvað varðar skipulagninguna máltíðanna sjálfra.

Taktu frá klukkutíma eða svo um helgi eða kvöld þegar þú getur einbeitt þér. Margar mismunandi aðferðir eru til. Þú gætir til dæmis fundið mataráætlunarforrit í snjallsímann þinn sem hentar. Svo er gamli góði penninn og blað eitthvað sem hentaði þér. Hvaða aðferð sem þú kýst þá mun það bera árangur.

Skipuleggðu meira en bara kvöldmat

Ef með því að skipuleggja kvöldmatinn sparar þér peninga er ansi líklegt að það sama eigi við um morgunverð og hádegisverð. Þetta eru engin geimvísindi. Þetta hljómar kannski eins og óþarfa vinna en þegar fjölskyldan er stór er það ekki óraunhæft að skipuleggja þrjár máltíðir á dag.

Ef metta þarf marga munna áður en farið er í skóla eða til vinnu, getur fyrir fram skipulagður morgunmatur dregið úr ringulreiðinni á morgnana. Þegar kemur að hádegismatnum snýst þetta um að hafa áætlun fyrir það sem þarf að pakka í nesti fyrir skólann eða vinnuna.

Skoðaðu búrið reglulega

Áður en þú sest niður til að gera vikuáætlunina er mikilvægt að athuga hvað er til nú þegar. Kíktu í skápana, ísskápinn og frystinn áður en þú útbýrð innkaupalistann.

Með þessu munt þú draga úr matarsóun því þú munt ekki óvart kaupa hráefni sem þú hafðir þegar við höndina. Þetta getur einnig gefið þér innblástur að þeim máltíðum sem þú vilt hafa á mataráætluninni.

Skoðaðu tilboðsauglýsingar matvöruverslana

Það er skynsamlegt að skoða auglýsingar verslana áður en máltíð er skipulögð. Eins auðvelt og það er að sleppa þessu skrefi, sérstaklega þegar þú ert að flýta þér, þá skaltu forðast það eins og heitan eldinn.

Ef þú færð ekki auglýsingar sendar heim til þín í pósti er ekkert mál að fletta upp tilboðum á vefsíðum matvöruverslana. Notaðu þetta til að skipuleggja máltíðirnar og í leiðinni spara nokkrar krónurnar. Einnig er þetta gott tækifæri til að fylla á frystinn ef hann er orðinn tómlegur.

Íhugaðu að vera með þemadaga

Til eru kjötlaus mánudagur og taco-þriðjudagur. Hvers vegna ekki hafa þá súpulaugardaga eða salatsunnudaga? Þema alla daga vikunnar með fyrir fram ákveðnum máltíðum hjálpar til við að draga úr vangaveltunum um hvað á að vera í matinn. Þetta getur líka dregið úr útgjöldum ef þú birgir þig upp af algengum hráefnum.

Heimagert pasta er auðveldara en þú heldur í framkvæmd.
Heimagert pasta er auðveldara en þú heldur í framkvæmd. mbl.is/Colourbox

Nýttu matinn í fleiri en eina máltíð

Orðið afgangur ber með sér ákveðna bagga. Því er betra að notast við hugtakið að nýta matinn í fleiri en eina máltíð. Það þýðir þó ekki að borða þurfi sömu máltíðina marga daga í röð heldur að hægt sé að nýta hluta af einni máltíð og endurnýta í aðra máltíð.

Þetta fyrirkomulag gefur þér ekki aðeins forskot á undirbúning máltíðanna fyrir vikuna. Það gerir þér einnig kleift að kaupa hráefni í stærra magni, sem dregur vanalega úr útgjöldum.

Veldu máltíðir sem samanstanda af einum rétti

Hvað eiga pasta, pottréttir og bökur sameiginlegt? Allt eru þetta einstakir réttir sem geta þjónað sem heil máltið, þar sem þessir réttir innihalda sterkju, prótein og grænmeti.

Með því að elda slíkar máltíðir þarf ekki að eyða peningum í viðbótarhráefni til að bragðbæta marga aðskilda rétti. Auk þess sparar þú tíma við að vaska upp, fríðindi sem allir kunna að meta.

Verywell Family

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert