Amanda Knox á von á öðru barni

Amanda Knox á von á sínu öðru barni.
Amanda Knox á von á sínu öðru barni. Samsett mynd

Hin 36 ára gamla Amanda Knox á von á sínu öðru barni. Knox var dæmd fyrir morðið á skiptinemanum Meredith Kercher árið 2007, en var sýknuð árið 2011. 

Knox á fyrir dótturina Eureku með eiginmanni sínum Christopher Robinson, en hún tilkynnti meðgönguna á Instagram-reikningi sínum í gær. 

Voru herbergisfélagar

Morð Kercher vakti mikla athygli á sínum tíma en Knox og Kercher voru herbergisfélagar á meðan þær voru í skiptinámi í Perugia á Ítalíu. Hin breska Meredith Kercher sem var aðeins 21 árs að aldri fannst látin á heimili þeirra.  

Rannsókn málsins vakti mikla athygli í fjölmiðlum á Ítalíu og vestanhafs en Knox er frá Bandaríkjunum. Knox ásamt kærasta hennar, Raffaele Sollecito, var dæmd í 28 ára fangelsi fyrir morðið á Kercher, en þau voru sýknuð eftir fjögurra ára fangelsisvist. 

Rudy Guede var einnig fundinn sekur um morðið á Kercher ári eftir Knox og Sollecito en var ekki sýknaður. Guede afplánaði 13 ár í fangelsi en dómur hans var styttur úr 30 árum í 16 ár eftir að hann áfrýjaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert