Gáfu syninum óvenjulegt nafn

Rihanna og A$AP Rocky hafa gefið syni sínum nafn.
Rihanna og A$AP Rocky hafa gefið syni sínum nafn. AFP

Tónlistarparið Rihanna og A$AP Rocky tóku á móti sínu öðru barni hinn 3. ágúst síðastliðinn. Nú hafa þau gefið syni sínum heldur óvenjulegt nafn sem hefur vakið mikla athygli.

Parið tók á móti sínu fyrsta barni hinn 13. maí 2022. Þau héldu nafni frumburðarins leyndu í tæplega ár, en í maí síðastliðnum opinberuðu þau að sonur þeirra hefði fengið nafnið RZA Athelston Mayers í höfuðið á RZA, rappara og leiðtoga Wu-Tang Clan.

Svo virðist sem parið hafi ákveðið að bíða ekki jafn lengi með að opinbera nafnið á sínu öðru barni. Fram kemur á vef Daily Mail að hann hafi fengið nafnið Riot Rose Mayers og er talið að það komi frá þekktu lagi A$AP Rocky, Riot, sem hann gaf út í júlí ásamt Pharrell Williams.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert