Rihanna orðin tveggja barna móðir

Rihanna er nýbökuð tveggja barna móðir.
Rihanna er nýbökuð tveggja barna móðir. Samsett mynd

Söngkonan Rihanna eignaðist sitt annað barn hinn 3. ágúst síðastliðinn, með kærasta sínum og rapparanum A$AP Rocky.

Rihanna tilkynnti um stækkun fjölskyldunnar í febrúar þegar söngkonan frumsýndi óléttubumbuna í hálfleik Ofurskálar NFL-deildarinnar í Bandaríkjunum.

Samkvæmt heimildum TMZ, sem greindi fyrst frá, þá eignaðist tónlistarparið dreng hinn 3. ágúst síðastliðinn í Los Angeles. Drengurinn hlaut nafn sem byrjar á stafnum R eins og eldri bróðir hans, RZA, sem fæddist parinu í maí á síðasta ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert