„Trúlega rákumst við saman“

Longdawn við höfnina í Vestmannaeyjum.
Longdawn við höfnina í Vestmannaeyjum. Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson

„Þetta gerðist allt í einu og mér að óvörum. Raunar átta ég mig ekki á því hvernig atburðarásin nákvæmlega var,“ segir Þorvaldur Árnason sjómaður og lyfjafræðingur. Hann var á strandveiðibátnum Höddu HF 52 sem hvolfdi út af Garðskaga í fyrrinótt. Þorvald sakaði ekki en hann lokaðist inni og fór niður þegar bátnum hvolfdi. Áður hafði honum tekist að klæða sig í björgunargalla, sem sjór flæddi inn í.

Sjómaður á nálægum bát bjargaði Þorvaldi um borð og fór með hann til Sandgerðis. Björgunarskip dró Höddu HF til hafnar og á fyrstu stigum voru þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og nálæg skip í viðbragðsstöðu.

„Ég er búinn að hluta til að gefa skýrslu vegna þessa atviks hjá lögreglu og fer aftur. Mestu skiptir núna að ég er óslasaður og líður ágætlega,“ sagði Þorvaldur við Morgunblaðið í gær.

Lög­regl­an á Suður­nesj­um rann­sak­ar hvort er­lenda flutn­inga­skipið Longdawn, sem var úti af Garðskaga í fyrrinótt, eigi þátt í því að Höddu hvolfdi. Land­helg­is­gæsl­an beindi í gær Longdawn inn til hafn­ar í Vest­manna­eyj­um þar sem skýrsla var tekin af skip­stjóra. Myndir sem teknar voru í Eyjum í gær sýna nýlegar skemmdir á perustefni flutningaskipsins.

„Trúlega rákumst við saman, þessi útlendi dallur og ég,“ sagði Þorvaldur Árnason. Hann kvaðst í stuttu samtali ekki geta tjáð sig um málsatvik að öðru leyti. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »