Fær sér kaffi með brjóstamjólk unnustunnar

Brody Jenner, sonur Caitlyn Jenner, ásamt unnustu sinni Tiu Blanco.
Brody Jenner, sonur Caitlyn Jenner, ásamt unnustu sinni Tiu Blanco. Skjáskot/Instagram

Brody Jenner kom mörgum á óvart í nýlegu Youtube-myndskeiði þegar hann setti brjóstamjólk frá unnustu sinni, Tiu Blanco, út í kaffibollann sinn. Jenner og Blanco tóku á móti sínu fyrsta barni saman í ágúst síðastliðnum. 

Í myndskeiðinu útbjó Jenner „brjóstamjólkurlatte“ fyrir sjálfan sig og unnustu sína eftir að hann áttaði sig á því að þau ættu ekki til möndlumjólk. 

„Jæja, ég ætlaði að útbúa kaffibolla fyrir okkur bæði og sé að við erum uppiskroppa með möndlumjólk. En ég fann eitt,“ sagði Jenner og hélt á poka merktum „brjóstamjólk“.

„Ég hef heyrt að hún sé mjög næringarrík. Ég hef heyrt að hún sé mjög ljúffeng. Ég held að hún muni duga,“ bætti hann við.

„Þetta er æðislega ljúffengt“

Því næst gekk Jenner inn í svefnherbergi þeirra og spurði unnustu sína: „Er þér sama ef við notum brjóstamjólkina sem ég setti inn í ísskáp í gærkvöldi?“ Blanco hafði ekkert út á það að setja svo Jenner útbjó fyrir þau kaffibolla með brjóstamjólk. Eftir að hafa tekið fyrsta sopann sagði Jenner: „Þetta er æðislega ljúffengt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert