41 árs og var að eignast sitt tíunda barn

Þetta er barnaskari.
Þetta er barnaskari. Samsett mynd

Philip Rivers, fyrrverandi leikmaður í NFL-deildinni, greindi frá því að hann hefði eignast sitt tíunda barn nú á dögunum. Rivers er aðeins 41 árs gamall en 21 ár eru á milli elsta og yngsta barnsins. 

Rivers kvæntist eiginkonu sinni, Tiffany Rivers, árið 2001. Stuttu eftir brúðkaupið urðu þau ófrísk að frumburði sínum og fyrstu dóttur. Í dag eiga hjónin sjö dætur og þrjá syni, en nýjasti fjölskyldumeðlimurinn er drengur. 

„Þetta er æðislegt og Tiffany er ótrúleg,“ sagði Rivers við AL.com. „Það skiptir engu máli hvort þetta sé fyrsta barnið eða það tíunda, hvert eitt og einasta er kraftaverk.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert