Unnur Eggerts gefur foreldrum skotheld ferðráð

Unnur Eggertsdóttir hefur verið dugleg að ferðast með dóttur sína …
Unnur Eggertsdóttir hefur verið dugleg að ferðast með dóttur sína sem er rúmlega eins og hálfs árs gömul. Samsett mynd

Leik- og söngkonan Unnur Eggertsdóttir hefur verið dugleg að ferðast með dóttur sína Emmu sem er rúmlega eins og hálfs árs gömul. Frá því í júní 2022 hafa Unnur og Emma farið í 18 flug saman. 

Það er því óhætt að segja að Unnur sé orðin ansi sjóuð í því að ferðast með lítið barn, en hún gaf foreldrum nokkur skotheld ferðaráð á Instagram-reikningi sínum þar sem mæðgurnar voru á leið í flug daginn eftir.

„Erum orðnar soldið góðar í þessu svo hér eru uppáhalds tipsin mín,“ skrifaði Unnur og deildi svo nokkrum skotheldum ferðaráðum sem hafa reynst henni vel. 

Uppáhaldsferðaráð Unnar Eggerts:

  • Snarl og meira snarl
  • Sirka viku fyrir flug fel ég uppáhalds bækurnar hennar svo hún verði sjúklega spennt fyrir þeim þegar hún fær þær aftur í vélinni
  • Nýtt dót (t.d. playdoh, límmiðar, nýir tússpennar)
  • Hún er nýbyrjuð að sýna sjónvarpsefni áhuga og fær aldrei að horfa heima en ég útiloka ekki að Blæja fái að vera smá barnapía á morgun
  • Auka föt á hana og mig
  • Ekki vera fyrstar um borð þótt börn séu kölluð upp fyrst! Ég vil alltaf vera með þeim síðustu til að boarda til að minnka tímann um borð
  • Magapoki algjört must fyrir < eins árs, núna er hún vaxin upp úr honum svo ég held við tökum ferðakerruna á morgun

Nýtir flugvöllinn til að þreyta barnið

Unnur mælir einnig með því að foreldrar nýti tímann á flugvellinum til að þreyta barnið. „Nota flugvöllinn til að þreyta þau. Um leið og hún var byrjuð að skríða nýttum við tímann á vellinum til að láta hana taka nokkrar ferðir. Gólf bakteríur eru ógeð en pirruð börn með uppsafnaða orku eru not fun,“ skrifaði hún. 

Þá segist Unnur frekar kjósa að fljúga að degi til en á næturnar. „Það „meikar sense“ að bóka næturflug því þau eru líklegri til að sofa meira en mér finnst flugin að degi til miklu betri. Það lendir eiginlega alltaf einn lúr inn í þeim svo maður fær alveg pásu. Mér finnst erfiðara að vera sjálf sjúklega þreytt og að aðrir farþegar séu líka þreyttir og þ.a.l. ekki jafn þolinmóðir fyrir babes. Fokkar líka minna í svefninum á áfangastað,“ skrifaði hún.

Þarf stundum að vera frekja

Unnur segist elska flugvöllinn í Keflavík þar sem börn fá að fara framfyrir allar raðir. „Á öðrum flugvöllum þarf stundum að vera frekja. Eitt trix sem getur cirkað er að segja frekar „where is the family line“ frekar en að spurja „is there“. Þannig þegar þau segja uu við erum ekki með svoleiðis þá segirðu ok then will you please escort me/send me to the front because I have a baby og þetta hefur eiginlega alltaf virkað. Það er ógeð cringy að vera drekja en það er torture fyrir all involved að bíða í klst röð með bebe. Fólk hefur gert verri hluti á flugvöllum,“ útskýrir hún.  

Unnur skráði niður allar flugferðirnar sem þær mæðgur hafa farið …
Unnur skráði niður allar flugferðirnar sem þær mæðgur hafa farið í síðastliðið ár. Skjáskot/Instagram
Unnur deildi skotheldum ferðaráðum með foreldrum.
Unnur deildi skotheldum ferðaráðum með foreldrum. Skjáskot/Instagram
Unnur nýtir biðina á flugvellinum vel.
Unnur nýtir biðina á flugvellinum vel. Skjáskot/Instagram
Þess vegna kýs Unnur frekar að fljúga að degi til …
Þess vegna kýs Unnur frekar að fljúga að degi til en á nóttunni. Skjáskot/Instagram
Unnur var hreinskilin í ráðum sínum.
Unnur var hreinskilin í ráðum sínum. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert