Dóttir Fransisku og Gunnars Nelson komin með nafn

Fransiska Björk Hinriksdóttir og Gunnar Nelson hafa gefið dótturinni nafn.
Fransiska Björk Hinriksdóttir og Gunnar Nelson hafa gefið dótturinni nafn. Skjáskot/Instagram

Bardagakappinn Gunnar Nelson og sambýliskona hans, Fransiska Björk Hinriksdóttir, eignuðust sitt annað barn í ágúst síðastliðnum. Nú hafa þau gefið dótturinni nafn. 

Stúlkan er annað barn Gunnars og Fransisku saman, en fyrir eiga þau eina dóttur saman og á Gunnar einnig son úr fyrra sambandi. 

Parið opinberaði nafnið í sameiginlegri færslu á Instagram, en stúlkan fékk nafnið Rósey Cesilie Nelson. „Hæ, ég heiti Rósey Cisilie Nelson. Fyrra nafnið datt pabba mínum í hug á fæðingardeildinni og seinna er nafn norsku ömmu minnar,“ skrifuðu þau við fallega myndaröð af dóttur þeirra. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim til hamingju með nafnið!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert