Gunnar Nelson orðinn þriggja barna faðir

Gunnar Nelson er orðinn þriggja barna faðir.
Gunnar Nelson er orðinn þriggja barna faðir. Ljósmynd/Snorri Björns

Bardagakappinn Gunnar Nelson og sambýliskona hans, Fransiska Björk Hinriksdóttir, eignuðust stúlku síðastliðinn sunnudag. Fyrir á parið eina dóttur saman en Gunnar á einnig son úr fyrra sambandi. 

Gunnar tilkynnti gleðifregnirnar á Instagram-reikningi sínum þar sem hann birti fallega mynd af börnunum sínum þremur. Þar greinir hann frá því að stúlkan hafi komið í heiminn klukkan 03:25 síðastliðinn sunnudagsmorgun. 

Þá segir hann að þeir Stígur séu nú komnir í minnihluta á heimilinu og að það styttist í að hann þurfi að kaupa stærri bíl fyrir fjölskylduna. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju með dótturina!

Gunnar deildi fallegri mynd af systkinunum.
Gunnar deildi fallegri mynd af systkinunum. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert