„Litla systir í bumbu“

Agnes Björgvinsdóttir á von á sínu öðru barni.
Agnes Björgvinsdóttir á von á sínu öðru barni. Skjáskot/Instagram

Agnes Björgvinsdóttir, förðunarfræðingur og eigandi Blank Reykjavík, á von á sínu öðru barni ásamt kærasta sínum, Kristjani Marko Stosic. Fyrir eiga þau soninn Björgvin Daða sem kom í heiminn 1. mars 2023. 

Agnes og Kristjan tilkynntu gleðifregnirnar í sameiginlegri færslu á Instagram. Þau birtu fallega mynd af óléttukúlunni og syni sínum með yfirskriftinni: „Litla systir í bumbu.“

Agnes hefur verið að gera það gott í förðunarheiminum síðustu ár, en í ársbyrjun 2022 stofnaði hún fyrirtækið Blank Reykjavík þar sem hún selur töskur, rúmföt, trefla og aðra fylgihluti. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert