Ingó veðurguð á von á barni

Ingó veðurguð á von á öðru barni.
Ingó veðurguð á von á öðru barni. mbl.is/Ófeigur

Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, á von á sínu öðru barni með kærustu sinni Alexöndru Eir Davíðsdóttur. Fyrir eiga þau son sem kom í heiminn í október 2022.

Ingó og Alexandra opinberuðu samband sitt sumarið 2021. Ingó greindi svo frá því að hann væri að verða faðir í þinghaldi vegna dómsmáls hans gegn Sindra Þór Sigríðarsyni í Héraðsdómi Reykjavíkur í maí 2022, en hann stefndi Sindra fyrir ummæli sem hann hafði um hann ári áður þegar Ingó var sakaður um kynferðisbrot.

Lítil systir á leiðinni

Nú er fjölskyldan að stækka og tilkynntu Ingó og Alexandra gleðifregnirnar í sameiginlegri færslu á Instagram. „Litli bróðir bara spenntur að taka á móti litlu systur í ágúst. Mamma og pabbi eru enn að undirbúa sig fyrir önnur 2-3 ár af bleyjum og tímaleysi en spennt á sama tíma,“ skrifuðu þau við myndaröð af fjölskyldunni. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert