Sandra og Daníel tilkynna kynið

Sandra Erlingsdóttir á von á sínu fyrsta barni.
Sandra Erlingsdóttir á von á sínu fyrsta barni. Ljósmynd/Jon Forberg

Handboltastjörnurnar Sandra Erlingsdóttir og Daníel Ingason greindu frá því að þau ættu von á sínu fyrsta barni saman í janúar síðastliðnum. Nú hafa þau opinberað kyn barnsins. 

Parið birti sameiginlegra færslu á Instagram með skemmtilegum myndum úr kynjaveislu sem þau héldu fyrir sína nánustu. Á myndunum má sjá blátt confetti-skraut rigna yfir þau sem gefur til kynna að þau eigi von á strák. 

Sandra og Daní­el eru bæði at­vinnu­menn í hand­bolta og eru bú­sett í Þýskalandi þar sem Sandra leik­ur með Tus Metz­ingen í þýsku úr­vals­deild­inni og Daní­el með Bal­ingen. Þau hafa bæði spilað með ís­lenska landsliðinu á ferli sín­um, en und­an­far­in ár hef­ur Sandra verið lyk­ilmaður ís­lenska kvenna­landsliðsins og var val­in hand­knatt­leiks­kona árs­ins 2023 af HSÍ.

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert