Mikið stuð var á skíðasvæði Ísafjarðarbæjar í dag. Fjöldi skíðagarpa mætti á svæðið, en þeir voru hvattir til að mæta í furðufötum.
DJ Glerbrot og DJ Eisi skemmtu skíðagörpunum. Þá voru grillaðar pylsur sem margir gæddu sér á.
Meðal þeirra sem kíktu í brekkuna var Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. Í gær opnaði hann myndlistarsýningu leikskólabarna í Ísafjarðarbæ.
Una Sighvatsdóttir, sérfræðingur hjá embætti forseta Íslands, lét sig ekki vanta. Hér fyrir miðju í forgrunni.
mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson
DJ Glerbrot og DJ Eisi skemmtu skíðagörpunum.
mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson
Fjöldi fólks skellti sér á skíði.
mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson
Sjálfa í brekkunni er nauðsyn!
mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson
Boðið var upp á pylsur.
mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson
Það er alltaf stuð að kíkja á skíði um páskana.
mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson
Fjöldi gæddi sér á pylsum.
mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson