Mamma gerði drauminn um gula veislu að veruleika

Birgitta Líf Magnúsdóttir, nemi í 9. bekk í Ölduselsskóla, fermdist í Guðríðarkirkju í fyrra. Dagurinn var frábær í alla staði en hún þakkar helst mömmu sinni, Auði Eir Guðnadóttur, sem skreytti salinn í gulu þema. Birgitta valdi þemað en liturinn hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá henni.

„Mér fannst dagurinn ótrúlega skemmtilegur. Þetta var dagur sem ég mun aldrei gleyma. Það var skemmtilegt allan daginn,“ segir Birgitta um fermingardaginn sinn í fyrra.

„Ég fór í hárgreiðslu, ég var máluð og hárið á mér greitt. Þaðan fór ég beint í kirkjuna. Svo fór ég í fermingarsalinn og beið eftir gestunum.“

Í hvernig fötum fermdist þú?

„Ég var í hvítum kjól sem var mjög erfitt af því ég er mjög mikil subba. Ég þurfti að vera í svuntu þegar ég fékk mér að borða fyrir kirkjuna,“ segir Birgitta og hlær þegar hún rifjar upp atvikið. Sem betur fer sullaðist ekki á kjólinn sem Birgitta keypti í Cosmo.

Faðir Birgittu stjórnaði spurningaleiknum Kahoot! en móðir hennar sá um …
Faðir Birgittu stjórnaði spurningaleiknum Kahoot! en móðir hennar sá um skreytingarnar. Ljósmynd/Krummadís

Nammibarinn sló í gegn

„Við vorum með Kahoot sem pabbi og stjúpmamma mín gerðu. Allir voru mjög spenntir fyrir því. Þau lögðu mikla vinnu í að finna spurningar eins og hvaðan amma mín væri ættuð og fleiri spurningar sem ég vissi ekki einu sinni svörin við,” segir Birgitta og útskýrir að hægt sé að hala niður smáforritinu og spila í símanum. Í fermingunni voru einnig á borðum myndir af Birgittu síðan hún var lítil sem og fyrir ofan gestabókina, og ljósmyndakassi.

Blöðrur gera mikið.
Blöðrur gera mikið. Ljósmynd/Aðsend

Nammibarinn skapaði einnig mjög góða stemningu að sögn Birgittu.

„Ég valdi nokkur uppáhaldsnammi og mamma valdi sum. Begga frænka mín sem er með BH hönnun kom með hugmyndina að hafa nammibar og ég var mjög spennt fyrir því. Yngri frændsystkinum mínum fannst æðislegt að hafa nammibar,“ segir Birgitta.

Nammibarinn var glæsilegur.
Nammibarinn var glæsilegur. Ljósmynd/Aðsend
Konfektið var í stíl við þemað og með myndum af …
Konfektið var í stíl við þemað og með myndum af Birgittu Líf. Ljósmynd/Aðsend
Smáfólkinu fannst nammibarinn sérstaklega skemmtilegur.
Smáfólkinu fannst nammibarinn sérstaklega skemmtilegur. Ljósmynd/Krummadís


Fékk allt sem hún óskaði sér

Birgitta er að æfa körfubolta með ÍR sem hafði áhrif á draumagjöfina. „Ég fékk ferð til New York en ég er ekki ennþá búin að fara. Við erum að fara á körfuboltaleik en við eigum eftir að finna út hvernig við setjum hana saman,“ segir Birgitta sem ætlar í ferðina með föður sínum. Uppáhaldsliðið í NBA er einmitt New York-liðið New York Knicks.

Hún fékk fleiri skemmtilegar gjafir en segir að hún eigi auðvitað mjög stóra fjölskyldu. „Ég fékk sjónvarp og tölvu sem mig er búið að dreyma um síðan ég var tíu ára. Svo fékk ég mikið af peningum.“

Auður Eir spreyjaði gamlan körfubolta sem Birgitta Líf var hætt …
Auður Eir spreyjaði gamlan körfubolta sem Birgitta Líf var hætt að nota Ljósmynd/Krummadís

Hvað gerðir þú við fermingarpeningana?

„Ég setti meirihlutann inn á bankabók. Svo er ég með sérreikning sem ég get tekið af og lagt inn á kortið mitt. Þar get ég líka safnað sjálf.“

Birgitta segir að það sé vissulega skrítin tilfinning að vera vera fermd en tilfinningin sé þó góð. Hún var búin að hlakka til lengi. „Þegar ég var lítil sagði ég alltaf þegar mig langaði í eitthvað stórt og ég gat ekki fengið gjöfina að mig langaði í hana í fermingargjöf. Þegar ég var tíu ára sagði ég að mig langaði í hest í fermingargjöf.“

Súkkulaðigosbrunnurinn sló í gegn.
Súkkulaðigosbrunnurinn sló í gegn. Ljósmynd/Aðsend

Gult þema eins og persónuleikinn

Auður, móðir Birgittu, var að halda sína fyrstu fermingarveislu en hún á þrjú börn. Hún segir að þau, foreldrarnir, hafi ákveðið að leigja sal þar sem fjölskyldur þeirra beggja eru fjölmennar. Þegar Auður hafði lokið sér af með góðri aðstoð leit salurinn engan veginn út fyrir að vera ópersónulegur eins og stundum vill verða.

„Mér finnst gaman að skreyta og hafa allt í stíl, finna liti sem passa saman,“ segir Auður um listrænu hæfileikana. Hún játar þó að hún hefði kosið liti eins og bleikan og gylltan hefði hún fengið að ráða öllu. Það kom ekki til greina að sögn Birgittu.

„Gulur hefur verið uppáhaldsliturinn minn síðan ég var lítil. Ég er líka svo gul persóna. Fólk hefur alltaf sagt að ef ég væri litur þá væri ég gulur, ég er opin og tala mikið við fólk. Uppáhaldsblómin mín eru sólblóm og mig langaði að hafa sólblómaþema,“ segir Birgitta.

Gulur er uppáhaldslitur Birgittu Lífar og var liturinn áberandi á …
Gulur er uppáhaldslitur Birgittu Lífar og var liturinn áberandi á veisluborðinu. Ljósmynd/Aðsend

„Við urðum að finna liti sem pössuðu saman. Það var líka erfitt að finna liti sem pössuðu við sólblómin. Sólblóm eru oft svolítið appelsínugul. Ég pantaði öll sólblómin á netinu, á Shein. Ég hefði aldrei fundið svona mikið gult hér heima,“ segir Auður um ágæti þess að panta á netinu. Hún segir það einnig hafa verið hagstætt.

Fjölskyldan leigði myndakassa í fermingarveisluna. Hér eru mæðgurnar Birgitta Líf …
Fjölskyldan leigði myndakassa í fermingarveisluna. Hér eru mæðgurnar Birgitta Líf og Auður Eir í stuði á einni mynd. Ljósmynd/Aðsend

Auður ákvað að forgangsraða í hvað hún eyddi. „Ég pældi alveg í því hvernig getur maður sparað og haft þetta flott á sama tíma,“ segir Auður. Begga í BH hönnun er frænka Auðar og hjálpaði hún mikið til við skreytingarnar. Einnig nýttu þær sér þjónustu hennar. „Við merktum gulllitaða konfektmola með nafni Birgittu og með myndum af henni. Mér fannst það skemmtilegra en að merkja servéttur sem fólk þurrkar sér með eða tímir því eiginlega ekki,“ segir Auður.

Hún segir fólk hafi hrósað skreytingunum en líka hlegið að því hversu langt hún gekk. „Já mamma missti sig aðeins,“ sagði dóttir hennar við gesti í fermingunni. En Birgittu fannst það samt líka skemmtilegt eins og gestunum.

Sólblóm eru í uppáhaldi.
Sólblóm eru í uppáhaldi. Ljósmynd/Aðsend

Fylgdi skreytingunum ekki mikið stress?

„Jú það var stress í gangi. Við náðum ekki að blása allar blöðrurnar upp. Ég pantaði 300 blöðrur eða eitthvað. Blöðrur gera ótrúlega mikið. Við þurftum að leigja tæki til að blása upp blöðrurnar til að vera sneggri.“

Gamlar myndir af Birgittu Líf gerðu borðið við gestabókina skemmtilega.
Gamlar myndir af Birgittu Líf gerðu borðið við gestabókina skemmtilega. Ljósmynd/Krummadís
Ljósmyndari fangaði stemninguna í veislunni.
Ljósmyndari fangaði stemninguna í veislunni. Ljósmynd/Krummadís

Notaði gamlan körfubolta í skreytingu

Fermingarborðið kom vel út. Þar var Auður með skraut ásamt veitingum. „Ég spreyjaði körfuboltann gylltan af því að Birgitta er að æfa körfubolta. Þetta var bara gamall körfubolti sem hún var hætt að nota. Svo skrifaði ég á hann Birgitta. Mér fannst þetta koma vel út að vinna með körfuboltann og gulan. Ég notaði líka Lakers-treyju af því hún er gul.

„Ég var með upphækkun á borðinu. Ég notaði kassa og setti dúk yfir. Ég notaði hvítt, ljóst gegnsætt efni til að skreyta með. Mér fannst mjög fallegt þegar maturinn var hátt uppi þó það hafi verið minna pláss á borðinu,“ segir Auður en í veislunni voru meðal annars kökur frá Önnu Konditori og gulir kleinuhringir.

Ferming Birgittu Lífar Magnúsdóttur 2023
Ferming Birgittu Lífar Magnúsdóttur 2023

Persónulegar myndir úr veislunni

Í stað þess að fara í hefðbundna fermingarmyndatöku mætti ljósmyndari í veisluna.

„Það heppnaðist mjög vel. Það náðust alveg ótrúlega fallegar myndir sem mér þykir einstaklega vænt um. Þetta eru ekki myndir sem eru uppstilltar. Birgita sagði sjálf að henni hefði fundist þetta mjög gaman og skemmtilegra en að stilla sér upp og reyna að vera venjuleg í myndatöku. Hún var ekki sátt við þetta fyrst en ég sagði við hana að þetta yrði miklu persónulegra.“ 

Er eitthvað sem þú myndir gera öðruvísi?

„Ég myndi panta meiri mat. Ég var með mikið af kökum en minna af réttum. Ég myndi örugglega vera fljótari að skreyta en mér fannst þetta alveg gaman,“ segir Auður og leggur áherslu á að fólk fái salinn sólahring fyrir veisluna. Það sé ekki gaman að skreyta í flýti eins og hún veit að fólk hefur lent í.

Marsípankaka er ómissandi.
Marsípankaka er ómissandi. Ljósmynd/Krummadís
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert