Jóhanna og Geir greindu frá kyninu með ofurkrúttlegu myndbandi

Fjölskyldan stækkar!
Fjölskyldan stækkar! Skjáskot/Instagram

Í síðustu viku greindu samfélagsmiðlastjarnan Jóhanna Helga Jensdóttir og Geir Ulrich Skaftason, viðskiptastjóri hjá Isavia, frá því að þau ættu von á sínu öðru barni saman. Nú hafa þau tilkynnt kyn barnsins með ofurkrúttlegu myndbandi. 

Fyrir eiga Jóhanna og Geir dótturina Tinnu Maríu sem kom í heiminn í mars 2020. Í myndbandinu situr fjölskyldan fyrir framan köku sem inniheldur annaðhvort blátt eða bleikt krem.

Vinkonur Jóhönnu, þær Sunneva Eir Einarsdóttir og Birta Líf Ólafsdóttir, sáu um að baka kökuna, en fjölskyldan notaði há glös á fæti til að skera í kökuna og í ljós kom að lítill drengur er á leiðinni. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert