Skilja eftir fjögurra ára hjónaband

Þegar allt lék í lyndi.
Þegar allt lék í lyndi. AFP

Kántrýparið Miranda Lambert og Blake Shelton hafa nú sótt um skilnað eftir fjögurra ára hjónaband.

Samkvæmt TMZ sótti Shelton um skilnað fyrir nokkru í Oklahoma. Ekki er vitað hvenær parið hætti að búa saman en talið er að gengið verði frá skilnaðinum nú á næstu dögum.

Það hefur gengið vel fyrir sig að skipta eignunum þeirra á þar sem að þau gerðu kaupmála áður en þau gengu í hjónabandið árið 2011. Þá mun Shelton fá heimili þeirra í Oklahoma en Lambert mun búa áfram í húsinu þeirra í Nashville Tennessee.

„Þetta er ekki framtíðin eins og við ímynduðum okkur hana og þessi ákvörðun var okkur erfið en nú höldum við áfram í sitthvoru lagi. Við erum bara venjulegt fólk, eigum venjulega fjölskyldu og vini. Þess vegna biðjum við um næði til að komast í gegnum þetta,“ sagði í yfirlýsingu frá parinu. 

Lambert og Shelton byrjuðu að stinga nefjum saman árið 2006. Þau tilkynntu svo trúlofun sína fimm árum síðar og giftu sig í Texas.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson