Cate Blanchett tjáir sig um ættleiðinguna

Ástralska leikkonan Cate Blanchett ættleiddi litla stúlku á árinu.
Ástralska leikkonan Cate Blanchett ættleiddi litla stúlku á árinu. AFP

Óskarsverðlaunaleikkonan Cate Blanchett ætlar að taka sér frí frá leiklistinni á næsta ári til að einbeita sér að uppeldi barna sinna. Blanchett og eiginmaður hennar Andrew Upton ættleiddu stúlkubarn í febrúar á þessu ári, en fyrir eiga þau þrjá syni á aldrinum 8-14 ára líkt og fram kemur í frétt The Telegraph.

„Við fengum símtal fyrr á þessu ári og við ættleiddum litla stúlku“ sagði leikkonan í samtali við tímaritið Harper‘s Bazaar. „Maður er á listanum og fær símtal. Maður veit ekki neitt um barnið sem maður er að fara að hitta.“

Leikkonan segir að synir hennar þrír hafi tekið stúlkunni, sem hlotið hefur nafnið Edith, opnum örmum.

„Líffræðilegu börnin okkar þrjú hafa verið ótrúleg. Það er búið að vera yndislegt að fylgjast með þeim verða lítill ungahópur.“

„Á næstunni munum sjá aukningu af munaðarlausum börnum vegna ástandsins í Sýrlandi. Heimurinn mun þurfa að bregðast við ástandinu“ bætti leikkonan við.

Þó að Blanchett ætli að taka það rólega á næsta ári er hún með nokkur járn í eldinum. Til að mynda mun hún ljá Völku rödd sína í How to Train Your Dragon 3 sem kemur út 2018, en einnig fer hún með hlutverk Kaa í Jungle Book: Origins sem kemur út 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson