Peter Andre, sem eitt sinn var kvæntur glamúrfyrirsætunni Katie Price, er að sögn æfur út í fyrrverandi spúsu sína.
Andre, sem nú er giftur Emily MacDonagh, er að sögn dauðleiður á því að Price tali um hjónaband þeirra við fjölmiðla en hún lýsti því yfir í viðtali að hún hefði í raun aldrei viljað skilja við hann. Þess að auki sagði hún að hjónabandið hafi farið úr skorðum vegna afskipta utanaðkomandi aðila.
„Pete var ævareiður þegar hann heyrði það sem Katie sagði. Þau voru bæði sammála um að þau myndu ekki viðra óhreinan þvott sinn við fjölmiðla,“ sagði ónefndur heimildamaður tímaritsins Closer.
„Emily var í svo miklu uppnámi því henni finnst Katie sýna mikla vanvirðingu með framkomu sinni.“
Price og Andre, sem eiga saman tvö börn, skildu árið 2009 en hvorugt þeirra hefur tjáð sig um hvað varð þess valdandi.
Frétt Mirror