Kardashian varð fyrir árás

Hjónin Kanye West og Kim Kardashian.
Hjónin Kanye West og Kim Kardashian. AFP

Grímuklæddir árásarmenn beindu byssum að raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian á hóteli í París í gær en þar tók hún þátt í tískuviku borgarinnar. Að sögn talskonu hennar var Kardashian mjög brugðið en líkamlega sé hún heil á húfi. 

Talskonan greindi frá þessu skömmu eftir að eiginmaður Kardashians, tónlistarmaðurinn Kanye West, batt skyndilega endi á tónleika sína í New York í gær og sagði að neyðartilvik hefði komið upp í fjölskyldunni.

Kanye West, Kim Kardashian, Kourtney Kardashian og Kris Jenner í …
Kanye West, Kim Kardashian, Kourtney Kardashian og Kris Jenner í París fyrir helgi. AFP

Að sögn talskonu Kim Kardashian réðust tveir vopnaðir grímuklæddir menn í lögreglubúningum inn í hótelherbergi Kardashian og beindu að henni byssu.  Greint hefur verið frá því að um rán hafi verið að ræða og mennirnir hafi stolið skartgripum Kim Kardashians sem metnir eru nokkrar milljónir evra.  

Í tilkynningu frá lögreglunni í París núna í morgun kemur fram að mennirnir hafi haft á brott með sér fleiri milljónir evra, að mestu í skartgripum. Ekki liggur nákvæmlega fyrir verðgildi þeirra.

Kim Kardashian.
Kim Kardashian. AFP

Kardashian er ein af þekktustu manneskjum Bandaríkjanna og hafði hún tekið þátt í tískuvikunni í París undanfarna daga. Í gær var það tískusýning Balenciaga. Þar vakti hún mikla athygli með því að mæta óförðuð á sýninguna, líkt og söngkonan Alicia Keys á MTV tónlistarmyndskeiðahátíðinni nýverið. 

Kardashian, sem er 35 ára, á tvö börn með eiginmanni sínum, West. Hún hefur verið fastur liður í fréttum af fræga fólkinu í meira en áratug, svo sem fyrir raunveruleikþætti um Kardashians-fjölskylduna og kynlífsmyndskeið sem var lekið á netið.

Kanye West og Kim Kardashian í París á fimmtudag.
Kanye West og Kim Kardashian í París á fimmtudag. AFP

West var meðal þeirra sem komu fram á hátíðinni Meadows í New York í gær. Hann steig á svið einum og hálfum klukkutíma seinna en hann átti að gera og hóf söng undir dynjandi flugeldasýningu. Eftir um það bil klukkustund á sviðinu hætti West skyndilega í miðju lagi og sagði: Mér þykir þetta leitt en sýningunni er lokið og yfirgaf sviðið. 

Fulltrúi hátíðarinnar kom þá upp á svið og sagði að 10 mínútna hlé yrði gert á dagskránni. En hann steig fljótlega aftur upp á sviðið og sagði að West hafi þurft að yfirgefa hátíðina skyndilega vegna neyðarástands í fjölskyldunni. 

Hjónin Kanye West og Kim Kardashian ásamt systur hennar, Kourtney …
Hjónin Kanye West og Kim Kardashian ásamt systur hennar, Kourtney Kardashian, á tískusýningu í París á fimmtudag. AFP

Stjórnendur hátíðarinnar gáfu síðar út tilkynningu þar sem West var hrósað fyrir flotta sýningu og að hugur þeirra væri hjá West og fjölskyldu hans. 

West flaug til Parísar til þess að vera hjá konu sinni og systur hennar, Kourtney Kardashian, á fimmtudag en þá átti hann frí í sólarhring frá tónleikaferðalagi sínu um Bandaríkin.

Margir gestir hátíðarinnar brugðust ókvæða við þegar West rauk af sviðinu og púuðu en hátíðin fór fram á leikvangi New York Mets. Enda höfðu einhverjir þeirra beðið klukkustundum saman eftir átrúnaðargoðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson