Svo virðist sem hálfsystir Meghan Markle, Samantha Grant, sé ekki ánægð með nýjustu ummæli Harrys Bretaprins um systur sína. Grant segir að Meghan eigi stóra fjölskyldu og hafi alltaf átt.
Harry sagði í útvarpsviðtali í gær að fjölskylda sín væri eins og fjölskyldan sem Meghan átti aldrei. Grant tekur ekki undir þetta og segir á Twitter að eftir að faðir þeirra skildi við móður Meghan hafi allt verið gert svo Meghan gæti átt tvö heimili.
Grant segir að fjölskylda þeirra Meghan sé heil með systur, bróður, frænkum og frændum og faðir þeirra sé límið sem haldi því saman. „Að giftast stækkar hana bara,“ sagði systir Meghan.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Grant tjáir sig um systur sína en hún segist vera með bók í smíðum. Fyrr á árinu þegar upp komst upp ritstörfin sagði Grant að Harry yrði fljótur að losa sig við Meghan þegar sannleikurinn kæmi í ljós.