Leikararnir Chris Pratt og Olivia Munn sáust á rómantísku stefnumóti á veitingastað í Los Angeles á dögunum. Pratt skildi við eiginkonu sína, leikkonuna Önnu Faris, á síðasta ári.
Samkvæmt ET fengu þau sér að borða á veitingastaðnum Craig's í Hollywood þar sem þau létu vel hvort að öðru að sögn sjónarvotts. Skötuhjúin létu lítið fyrir sér fara þrátt fyrir að hafa ekki farið leynt með aðdáun sína hvort á öðru og eru þau grunuð um að hafa laumað sér inn á staðinn í gegnum eldhúsið.
Fréttir bárust af sambandi þeirra Pratt og Munn í byrjun árs. Svo virðist sem þau Pratt og Faris séu bæði komin yfir hjónabandið en Faris hefur sést mikið með kvikmyndatökumanninum Michael Barrett síðan í september.