Bandaríska tónlistarkonan Lady Gaga hefur aflýst tíu síðustu tónleikum sínum á tónleikaferðalagi sinni um Evrópu vegna „gríðarlegra verkja“ að því er fram kemur í færslu hennar á Twitter. Hún segist miður sín vegna málsins en að hún verði að setja sjálfa sig og heilsu sína í fyrsta sæti.
Lady Gaga er með vefjagigt sem er langvinnur sjúkdómur sem getur valdið miklum sársauka víðsvegar um líkamann.
Meðal tónleika sem hún hefur nú aflýst eru þeir sem fara áttu fram í London og Manchester, að því er fram kemur á BBC.
— Lady Gaga (@ladygaga) February 3, 2018