Breski pönk-rokkarinn Billy Idol mun troða upp í Laugardalshöll miðvikudaginn 1. ágúst þar sem hann mun flytja öll sín helstu lög, en hann hefur selt meira en 40 milljón plötur og náð níu lögum inn á topp 40 listann í Bandaríkjunum og tíu í Bretlandi. Meðal hans helstu slagara eru lögin Dancing with myself og White wedding.
Það er tónleikahaldarinn Tónleikur ehf. sem flytur Billy Idol inn, en þetta eru aðrir tónleikarnir í sumar sem fyrirtækið tilkynnir um í dag. Áður hafði verið greint frá því að breska söngkonan Katie Melua kæmi fram í júlí í Hörpu.
Miðasala á tónleika Billy Idol hefjast 20 febrúar. Ekki verða seldir miðar í stúku, heldur aðeins fyrir standandi í salnum.