Fáðu ókeypis sambandsráð á Reddit!

Á Reddit er hægt að lesa allt milli himins og …
Á Reddit er hægt að lesa allt milli himins og jarðar og kjósa það upp eða niður, jafnvel gefa ráð og fá ráð. Eru vinirnir orðnir leiðir á að hlusta á sögur af fyrrverandi? Þá er Reddit málið. mbl.is/Thinkstockphotos

Eru vinirnir hættir að nenna að hlusta á sögur um þína/þinn fyrrverandi? Ekki hafa áhyggjur, það er alltaf einhver á Reddit sem nennir að gefa þér sambandsráð. Þú smellir í hægra hornið á síðunni og setur inn umtalsefnið og þá koma upp þráðir og leiðir fyrir þig að pósta.

Ef Google er þekktasta leitarvélin í heiminum, þá er Reddit vinsælasta frétta og ráðlegginga vélin. 

Reddit samfélagið er mjög virkt og er hægt að sjá allskonar spurningar inn á vefnum, allt frá því hvort það sé góð hugmynd að bjóða menntaskólaástinni út? Yfir í það hvernig best er að finna tíma fyrir kynlíf, ef þú ert nýbakað foreldri.

Þetta er það sem við fundum áhugavert á Reddit:

Ég sakna þín

„Við hættum saman í janúar og tilfinningarnar koma og fara. Þó við tölum ennþá saman og erum góðir vinir, þá sakna ég þín. Jafnvel þó hlutirnir hafi ekki alltaf frábærir hjá okkur, við værum barnaleg og rifumst um hluti sem skipta engu máli, þá elska ég þig og allt sem tilheyrði okkur. Ég get ennþá stólað á að þú sért til staðar fyrir mig, en samt sakna ég þín. Ég get talað við þig um allt, en samt sakna ég þín. Það hefur kannski ekki svo margt breyst á milli okkar frá því við hættum saman, en samt er allt öðruvísi. Ég sendi á þig skilaboð en samt sakna ég þín. Ég sé þig samt ekki fyrir mér sem hinn fullkomna ástvin fyrir mig, en samt sakna ég þín. Það er hlutur sem ég ekki skil.“

Eitt af svörunum sem þetta fékk á Reddit var: 

„Ég ætla að viðurkenna eitt hér. Ég var á sama bát og þú, ég hinsvegar gerði svolítið til að láta mína f fyrrverandi verða reiða og hata mig.... Það greinilega dró úr sársauka hennar, því hún saknaði mín ekki og komst yfir sambandið frekar fljótt. En ég gerði það hins vegar ekki. Vertu sterk, taktu þinn tíma til að jafna þig áður en þú ferð í nýtt samband.  Að lokum mun eitthvað gerast sem veldur því að tilfinningarnar minnka eða jafnvel hverfa.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson