Í byrjun næsta mánaðar verður spennumyndin Vargur frumsýnd, en það er fyrsta kvikmyndin í fullri lengd í leikstjórn Barkar Sigþórssonar. Hann hefur hingað til meðal annars verið einn af leikstjórum Ófærðar og stuttmynda, sem og sjónvarpsefnis í Bretlandi.
Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá eitt af hasaratriðum myndarinnar og ljóst er nóg verður um hasar í myndinni. Fáum við þar meðal annars að sjá alla aðalleikara myndarinnar bregða fyrir.
Með aðalhlutverk fara þeir Gísli Örn Garðarsson og Baltasar Breki Samper, en þeir leika bræður sem báðir eru í bráðum fjárhagsvanda, af ólíkum ástæðum þó. Annar þarf að koma sér undan handrukkurum vegna fíkniefnaskuldar, en hinn hefur dregið sér fé á vinnustað til að fjármagna dýran lífsstíl. Saman ákveða þeir að grípa til ólöglegra aðgerða til að koma sér á réttan kjöl.
Aðalkvenhlutverkin eru síðan í höndum tveggja erlendra leikkvenna. Pólska leikkonan Anna Próchniak leikur burðardýr bræðranna og danska leikkonan Marijana Jankovic leikur rannsóknarlögreglukonu, en þess má geta að hún lét ekki nýtt tungumál vefjast fyrir sér og talar íslensku í myndinni.
Framleiðendur eru RVK Studios og Baltasar Kormákur, en Baltasar Breki, einn aðalleikari myndarinnar er einmitt sonur hans. SENA sér um dreifingu myndarinnar hér á landi, en hún verður frumsýnd 4. maí.