Ari flutti framlag Íslands með glæsibrag

Flutningur Ara Ólafssonar á framlagi Íslands í Eurovision í ár, …
Flutningur Ara Ólafssonar á framlagi Íslands í Eurovision í ár, „Our choice“ eftir Þórunni Ernu Clausen, var óaðfinnanlegur á stóra sviðinu í Lissabon í kvöld. Ljósmynd/Andres Putting

Ari Ólafs­son flutti framlag Íslands, „Our Choice“, af miklu öryggi eins og við mátti búast á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision sem fram fer í Lissabon í kvöld. Flutningnum lauk rétt í þessu og nú er komið að Evrópu að ákveða örlög Ara og íslenska hópsins. 

Sviðsframkoma íslenska hópsins var til fyrirmyndar og þau tóku sig vel út í klæðnaði eftir fatahönnuðinn Ýr Þrastardóttur. Ari klæddist hvítu jakkafötunum líkt og hann hefur gert hingað til, en fötin vísa í eldgos og ástríðueld. 

Ari var annar á svið svo það er nóg fram undan áður en kemur í ljós hvaða 10 af 19 lögunum sem keppa í kvöld komast áfram í úrslitakeppnina sem fer fram á laugardag. 

Hér er hægt að fylgjast með beinni lýsingu á mbl.is á fyrri undankeppninni. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson