Harry Bretaprins gengur í það heilaga með Meghan Markle á morgun, laugardag. Pressa hefur verið á Harry sem verður 34 ára í haust að finna sér kvonfang en Harry átti í nokkrum misalvarlegum samböndum áður en hann kynntist hinni einu sönnu.
Natalie Pinkham
Fjölmiðlakonan og Harry eru sögð hafa verið að hittast árið 2003. Þau hafa hins vegar aldrei staðfest það en eru sögð hafa haldið vinskapnum.
Chelsy Davy
Harry og Davy voru saman lengur en Meghan og Harry hafa verið en þau voru saman frá árinu 2004 til 2011 samkvæmt The Sun. Parið sem átti það til að byrja saman og hætta saman aftur kynntust í Höfðaborg í Suður-Afríku en Davy fæddist í Zimbabwe og er dóttir milljarðamærings. Þrátt fyrir að hafa hætt saman segir Davy þau vera góða vini.
Caroline Flack
Sjónvarpsstjarnan og Harry Bretaprins voru að hittast árið 2009. Flack greindi frá því samkvæmt Daily Mail að þau hefðu hætt að hittast þegar það komst í fréttir.
Florence Brudenell-Bruce
Harry er sagður hafa átt í stuttu sambandi við bresku fyrirstæuna árið 2011. Þau eru sögð hafa eytt tíma á heimil hennar í Notting Hill auk þess sem þau eru sögð hafa átt leynileg stefnumót. Höllin var spurð í út í sambandið á sínum tíma en neitaði að svara til um einkalíf prinsins.
Mollie King
Söngkonan átti í stuttu sambandi við Harry árið 2012. Harry er hins vegar sagður hafa kælt sambandið þar sem söngkonan talaði of opinskátt um samband þeirra.
Cressida Bonas
Leikkonan átti í sambandi við Harry á árunum 2012 til 2014 en frænka Harry, Eugenie prinsessa, kynnti þau. Sambandinu lauk vegna þess að Bonas þoldi ekki athyglina sem sambandið fékk.
Meghan Markle
Harry hitti Meghan á blindu stefnumóti sumarið 2016. Þau trúlofuðu sig síðasta haust og ganga í hjónaband á morgun, laugardaginn 19. maí.