Fatahönnuðurinn og fyrrverandi kryddpían Victoria Beckahm talaði vel um hjónaband sitt á og David Beckham á viðburði á vegum Forbes í New York á þirðjudaginn. Ekki er ólíklegt að ræðan tengist því eitthvað að fyrir stuttu fóru skilnaðarsögur enn og aftur á flug.
„Ég reyni mjög, mjög mikið. Ég reyni mest að vera hin besta móðir,“ sagði frú Beckham samkvæmt Hello. „Ég er að reyna að vera besta eiginkonan og besti starfsmaðurinn. Þegar ég kem heim reyni ég að slökkva á símanum og eyði tíma með börnunum og eyði tíma með David.“
Beckham hjónin fagna 19 ára brúðkaupsafmæli í byrjun júlí og eiga þau saman fjögur börn. „Ég hef stuðning ótrúlegs eiginmanns. Við erum jafningjar þegar kemur að því hvað við gerum heima með börnunum. Þegar ég er í burtu er það hann sem sinnir skólanum og eldar.“