Leikarahjónin Will Smith og Jada Pinkett Smith eru oft sögð eiga eitt besta hjónabandið í Hollywood en þau fögnuðu 20 ára brúðkaupsafmæli í fyrra. Leikarinn tjáði sig um hjónabandið í hlaðvarpsþættinum Rap Radar á Tidal.
Í þættinum greindi hann frá því að þau væru hætt að tala um sig sjálf sem gift fólk. „Við tölum um okkur sjálf sem lífsförunauta, þegar þú ferð á þann stað að þú áttar þig á að þú ert með einhverjum það sem eftir er,“ sagði Smith. „Það er ekkert sem gæti eyðilagt sambandið. Hún hefur minn stuðning allt til enda og það er svo gott að vera á þeim stað.“