Kim Kardashian West hefur verið með sítt hár í mörg ár. Jafnframt hefur hún verið með lengingar í hárinu sem virðast fara illa með hárið þegar til lengri tíma er litið. Nú hefur hún ákveðið að taka lengingarnar úr hárinu og birtir myndir af sér með fallegan stuttan kollinn.
Það verður gaman að fylgjast með hvað hún gerir á næstu mánuðum. Hvort hún haldi þetta út og fari í hollt fæði og næri hárið í sínu náttúrulega formi eða hvort hún gefist upp og setji nýja lokka.
Eitt er víst að til lengri tíma er alltaf best að fara náttúrulegu leiðina.
Fólkið er á því að þessi nýja greiðsla fari Kardashian-systurinni bara vel. Það eiga örugglega margir eftir að fylgja henni eftir á næstunni.