Leikarinn Matthew Perry, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Friends, greindi frá því í dag að hann hefði dvalið á sjúkrahúsi undanfarna þrjá mánuði.
Perry er 49 ára og greindi frá sjúkrahúsvistinni á Twitter. Um var að ræða fyrstu færslu hans á þeim miðli frá því í mars.
„Þrír mánuðir á sjúkrahúsi,“ skrifaði hann. Fyrir um mánuði síðan greindi talsmaður hans frá því að Perry hefði gengist undir aðgerð vegna rifu í meltingarvegi. Slík veikindi gera orsakað verulega verki sé ekkert að gert.