Kourtney Kardashian lifir lífinu sem sjálfstæð einstæð móðir til hins ýtrasta. Samkvæmt E News var hún úti alla helgina með vinum að skemmta sér. Þeirra á meðal var fjölskylduvinurinn Luka Sabbat. Kardashian-systirin var í fallegum silfurlituðum kjól.
Hún er þekkt fyrir að hafa gaman af því að kíkja út þegar hún er ekki með börnin, en smakkar lítið áfengi og er sjálfri sér til sóma að sögn vina.
Erlendir fréttamiðlar greina frá því að Kardashian-systirin sé mikið með fyrirsætunni Luka Sabbat þessa dagana. Það sem vekur athygli er að hún er 39 ára en hann 20 ára að aldri.
Mynd af þeim birtist hjá Dave Grutman á Instagram um helgina. Hann hefur verið töluvert áberandi í félagslífinu í Miami að undanförnu.
View this post on InstagramA post shared by David Grutman (@davegrutman) on Sep 15, 2018 at 11:55pm PDT
Sabbat og Kourtney Kardashian voru einnig ljósmynduð daginn áður þar sem þau voru úti að borða í Los Angeles saman.
Aldur er afstæður í borg englanna.