„Ég verð að láta ykkur vita að ég er að flytja aftur Chicago og ætla aldrei að fara til baka,“ sagði rapparinn Kanye West á mánudaginn samkvæmt <a href="http://www.tmz.com/2018/09/18/kanye-west-moving-chicago-kim-kardashian-kids/" target="_blank">TMZ </a>og tilkynnti þar með að hann væri að flytja til Chicago.
Rapparinn sem er frá Chicago og nefndi yngstu dóttur sína eftir borginni býr með eiginkonu sinni, raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian, í Los Angeles. Hann ku þó ekki vera að flýja fjölskyldu sína og sólina í L.A. þar sem hann ætlar að búa á báðum stöðum.
Eiga hjónin að vera búin að finna hús í Chicago og er West sagður ætla að flytja skrifstofur sínar til Chicago. Eru þau sögð ætla að hafa aðalheimili sitt í Chicago, þetta gæti verið flókið fyrir Kardashian þar sem fjölskylda og vinir búa flestir í borg englanna auk þess sem stærsti hluti raunveruleikaþátta hennar er tekinn upp þar. Þetta er þó lítið vandamál fyrir West sem sér þetta þannig að hann geti átt tvö aðalheimili.