Gítarleikari Aerosmith, Joe Perry, er á batavegi eftir að hafa hnigið niður skömmu eftir tónleika með Billy Joel í Madison Square Garden í New York á laugardagskvöldið.
Perry, sem er 68 ára gamall, lenti í andnauð og þurfti á súrefnisgjöf að halda sem veitt var af sjúkraflutningamönnum baksviðs. Samkvæmt tilkynningu frá talsmanni Perry er hann allur að koma til en þyrfti að aflýsa fyrirhuguðum tónleikum. Hann fái að fara heim síðar í mánuðinum.
Perry hafði nýlokið við að flytja lagið Walk This Way sem hann samdi á sínum tíma með félaga sínum Steven Tyler þegar hann hrundi niður í búningsherbergi sínu.