Á laugardaginn hófst miðasala á tónleikaferðalag Spice Girls en kryddpíurnar verða bara fjórar á tónleikunum. Söngkonurnar buðu ekki einu sinni fimmtu kryddpíunni, Victoriu Beckham, að vera með á tónleikaferðalaginu.
Það hefur lengi verið skýrt af hálfu Victoriu Beckham að tónlistin sé hluti af fortíð hennar, ekki framtíð.
Í sjónvarpsþætti á dögunum ræddu söngkonurnar fjórar Beckham og sagði Mel C að þær hefðu bara gert ráð fyrir að hún vildi ekki vera með. Á fína kryddið að hafa bent Mel C á að þær hafi aldrei spurt hana fyrir alvöru hvort hún vildi vera með á tónleikaferðalaginu.