Leikarinn Frankie Muniz var gífurlega vinsæll í fjölskylduþáttunum Malcolm í miðjunni sem sýndir voru á Skjá einum á sínum tíma. Muniz er í dag fullorðinn maður, verður 33 ára í næsta mánuði, og trúlofaði sig á dögunum.
Muniz bað kærustu sinnar Paige Price eftir margra ára samband, Price greindi frá þessu á Instagram og fór fögrum orðum um unnusta sinn.
Muniz lagði leiklistarferilinn á hilluna fyrir tíu árum og hefur meðal annars starfað sem tónlistarmaður. Leikarinn fékk vægt heilablóðfall þegar hann var 27 ára og missti í kjölfarið hluta af minni sínu. Á hann til að mynda erfitt með að rifja upp tímann sem leikari í þáttunum Malcolm í miðjunni.