Leikkonan Heather Locklear er enn á spítala síðan í síðustu viku. Er Melrose Place-stjarnan sögð hafa verið vistuð í 72 klukkutíma nauðungarvist. Locklear var handtekin fyrir heimilisofbeldi og fyrir að beita lögreglu ofbeldi fyrr á árinu en fór í meðferð vegna geð- og fíknisjúkdóma sinna í sumar.
Samkvæmt heimilidum Us Weekly er fjölskylda leikkonunnar að safna saman upplýsingum um hvað þarf til svo hægt sé að svipta Locklear sjálfræði. Er lögmaður Locklear sagður vera að ráðfæra sig við þá sem sáu um mál Britney Spears þegar faðir hennar var skipaður umsjónarmaður hennar.
„Fjölskylda Heather er algjörlega hjálparvana og líður eins og þetta gæti verið eina leiðin til þess að bjarga lífi hennar. Hún vill ekki vera í meðferð og útskrifar sig alltaf snemma,“ sagði heimildarmaður.