Hjónin Kanye West og Kim Kardashian mættu saman á tískusýningu Versace í New York á sunnudaginn. Það er farið að kólna í New York rétt eins og á Íslandi en þrátt fyrir það virðist bara annar aðilinn í hjónabandinu hafa klætt sig eftir veðri.
Rapparinn mætti í síðri vetrarkápu á meðan Kardashian var berleggja í stuttum ermalausum kjól. Ekki skal segja hvort þeirra klæddi sig eftir veðri en það er ekki ólíklegt að West hafi lesið nákvæmar veðurspá en eiginkona hans. Þótt veðrið sé mögulega ögn skárra en á Íslandi er ólíklegt að sólin hafi skinið á barm raunveruleikastjörnunnar í þetta skiptið.